Láttu nýjan miðbæ
verða að veruleika

Vertu hlynnt(ur) nýju skipulagi í íbúakosningu 5.-15. desember og tryggðu Höfn loksins alvöru miðbæjarkjarna.

Íbúakosning um breytta ásýnd Hafnar

Í kosningunni 5.–15. desember taka íbúar afstöðu til margskonar uppbyggingaráforma og samninga milli Sveitarfélagsins Hornafjarðar og Landsbyggðar. Horfðu á myndbandið til að skilja betur um hvað málið snýst.

Hjartað slær við höfnina

Hafnarstarfsemin er ekki aðeins hjartað í samfélaginu heldur um leið það sem veitir bænum sína helstu sérstöðu. Nýja skipulagið setur miðbæinn þar sem hjartað slær. 

Dragðu til stikuna til að sjá hafnarsvæðið fyrir og eftir fyrirhugaðar framkvæmdir.

Ólík svæði með sameiginlegan þráð

Segja má að skipulagið skiptist í þrjú meginsvæði. Gönguleiðir tengja svæðin saman og með tímanum mun hvert þeirra fá tækifæri til að móta sín sérkenni.
Heppusvæðið

Heppa verður miðpunktur bæjarlífsins. Nýtt torg, veitingar, verslun, þjónusta, mannlíf og viðburðir.

Hótelið við höfnina

Nýtt hótel er lykilforsenda fyrir uppbyggingunni og breytir viðkomu gesta í lengri dvöl.

Bárubyggð

Heimilislegra svæði við íþróttasvæðið, þar sem hreyfing og útivist móta daglegt líf.

Nánar um skipulagið

Skipulag sem verður að veruleika. Strax.

Í þessu verkefni er Landsbyggð bæði þróunaraðili og framkvæmdaaðili, sem hefur áður staðið að sambærilegu verkefni á Selfossi. Það er kunnátta, færni og vilji til að láta hlutina gerast.
Nánar um framkvæmdina
Horft frá Víkurbraut í átt að höfninni
Bryggjan með hótelið í bakgrunni
Heppusvæðið með iðandi mannlíf
Mikligarður séð frá bryggjunni með glerskála í forgrunni sem býr til sjónlínu að Hepputorgi
Heppusvæðið séð frá Heppu